Eftirfarandi eru bækur sem ég hef lesið í gegn um árin og mæli eindregið með. Gott er að skoða listann og athuga þær bækur sem þú dregst að.
Allar bækurnar eru til á amazon.com eða amazon.co.uk .
Þið getið smellt á nafn bókarinnar við hliðina á hverri mynd til að tengjast upplýsingum um hana á Amazon. (Stundum líta myndirnar af bókunum öðruvísi út á Amazon, en samt sömu bækurnar :))
Hendur Ljóssins (Hands of Light) eftir Barböru Brennan
Einstaklega góð og fræðandi bók um heilun, orksvið og orkustöðvar mannsins. Frábær lesning. Líka til á íslensku og heitir Hendur Ljóssins.
Light Emerging eftir Barböru Ann Brennan.
Framhald af Hendur Ljóssins. Eingöngu til á ensku. Sérlega fræðandi og gefandi framhaldsbók um heilun mannsins og hin dýpri orkusvið. Stórkostleg lesning að mínu mati.
Mátturinn í núinu eftir Eckhart Tolle.
Hafði djúp áhrif á mig varðandi mátt „núvitundar.“ Mögnuð bók um undur mannlegrar vitundar og mátt hennar.
Ný jörð (A New Earth) eftir Eckhart Tolle.
Mögnuð framhaldsbók The Power of Now sem fer dýpra í tilgang mannsins hér á jörð og hvernig sé hægt að skapa betri heim með einstaklings og sameignlegum mætti mannkyns. Frábær lesning.
Mæli líka með þáttum Opruh Winfrey og Eckhart Tolle á Youtube um A New Earth. 10 þættir sem voru einskonar kennsluþættir um bókina. Frábært áhorf. Hér er linkur af þætti nr 1:
http://www.youtube.com/watch?v=_WNkDz8HAsE
Ask and It is Given eftir Esther og Jerry Hicks.
Yndisleg bók um Sköpunarlögmálið og hinn skapandi mátt sem hver einstaklingur hefur í lífinu. Mjög upplyftandi og lífgefandi lesning.
You Can Heal Your Life eftir Loise L. Hay.
Einnig mjög lífgefandi lesning um sjálfsheilunarmátt mannsins og hvernig má lifa betra og fyllra lífi. Hennar eigin saga er mögnuð. Er til í íslenskri þýðingu og heitir: Hjálpaðu sjálfum þér.
Heal your body eftir Loise L. Hay.
Ansi merkileg bók þar sem Loise skráir niður hennar túlkun á mögulegum undirliggjandi huglægum vandamálum líkamlegra kvilla, verkja og veikinda. Hef þessa bók oft við hendina.
Kærleikur, lækningar, kraftaverk eftir Bernie S. Siegel.
Frábær og fróðleiksfull bók. Eins og segir á bókarkápu: „Reynsla skurðlæknis af einstökum hæfileika sjúklinga til að læknast af sjálfsdáðum.“
Lögmálin 7 um velgengni eftir Depak Chophra.
Einstök bók um sköpunarmátt mannsins og leiðir til að lifa innihaldsríku og gefandi lífi. Að mínu áliti sameinar vel visku „The Secret“ og „The Power of Now.“
Lifðu í gleði eftir Sanaya Roman.
Bók sem ég las fyrir mörgum árum og hafði djúp áhrif á mig. Virkilega góð bók um áhrifamátt gleði og ánægju í lífi hver og eins. Til í Íslenskri þýðingu og heitir Lifðu í gleði
Auktu styrk þinn með næmi og skynjun eftir Sanaya Roman.
Framhaldsbók „Lifðu í gleði“ um að þróa með sér næmi skynjunar til betra lífs og krafts. Mjög lærdómsrík lesning.
Bók Emmanúels eftir Pat Rodegast
(sem hefur t.d. unnið náið með Barböru Brennan.) Bók sem ég las fyrir löngu síðan og hafði mjög djúp áhrif á mig og mitt líf. Hún er sett upp í ljóðaformi og eins og segir á bókarkápu er: Leiðarljós til auðugra lífs. Hafði miklar mætur á þessari bók. Til í íslenskri þýðingu.
The Undefended Self eftir Susan Thesenga.
Virkilega góð bók um gerð persónuleika mannsins og leið hans til þroska, hvernig sé hægt að lifa á kærleiksríkari og varnarlausari hátt.
Coming to our Senses eftir Jon Kabat-Zinn.
Einstakega góð og fróðleiksrík bók um „Núvitund,“ og leiðir til að auka hana í daglegu lífi sem og hugleiðslu.
Og svo framvegis, og svo framvegis :).
Mun halda áfram að lista fleiri góðar bækur sem ég man eftir og sem ég kem til með að lesa!
Bækur sem mig langar til að lesa og hefur verið mælt með við mig:
Dying to be me eftir Anitu Moorjani.
The Healing Power of Mind eftir Tulku Throndup