Allar færslur eftir Johanna Jonas

NÁMSKEIÐ: TÖFRAKRAFTUR ÞAKKLÆTIS
TÖFRAKRAFTUR ÞAKKLÆTIS.     
(og önnur verkfæri til betra lífs)

Langar þig að læra að bæta líf þitt til frambúðar?
Langar þig að læra að lifa meira frá hjartanu lífi þínu til heilla?
Langar þig að upplifa betra haust og vetur en áður?
  

NÁMSKEIÐTÖFRAKRAFTUR ÞAKKLÆTIS (og önnur verkfæri til betra lífs):  8 skipta námskeið sem hefst laugardaginn 11 sept kl 10.00 – 12.30  og endar laugardaginn 30 apríl 2022.  Sjá dagsetningar að neðan. 

EFNI OG INNIHALD NÁMSKEIÐS:
1. Í hverju felst iðkun þakklætis, hvernig og til hvers, rannsóknir og vísindi.

2.  Iðkun þakklætis á erfiðum tímum og þegar sjúkdómar herja, hvernig eflir hún þrautsegju í lífinu, rannsóknir og vísindi

3.  Samþætting huga og hjarta, mikilvægi þess, rannsóknir og vísindi.

4.  Gildi hugleiðslu og hvernig þakklæti spilar þar inn í, rannsóknir og vísindi.

5.  Máttur ásetnings og hvernig þakklæti spilar þar inn í.

6.  Unnið með heilunarbæn til að virkja mátt hjartans. 

7.  „Að lifa í flæði,“ hvað þýðir það að hlusta á sitt eigið „flæði“ og hvernig er farið að því til að forðast streitu og kulnun.

8.  Samþætting allra þátta til betra lífs. 

Í fyrsta tíma 11 sept:    kynning og fyrirlestur. 
Í síðari tímum:    10:00-11:00 umræður, deild reynsla, spurt & svarað
11:00 – 12.30 fyrirlestur um efni dagsins og hugleiðsla í lokin. 

Haustið 2020 fór ég af stað með fyrsta námskeiðið af þessari tegund sem tókst alveg sérlega vel. (Sjá umsagnir að neðan). Meirihluti þátttakenda vildi halda áfram og því var ég með framhaldsnámskeið með þeim hópi síðastliðinn vetur á Covid tímum.  Nú er loks kominn tími til að endurtaka leikinn með nýju  námskeiði.  Það er ástríða hjá mér að koma þessu efni á framfæri þar sem ég tel það einstaklega mikilvægt til að lifa sem bestu lífi í heimi sem er oft á tíðum krefjandi.

Þetta námskeið er tilvalið fyrir 2 eða fleiri til að gera saman!  Hér er grein eftir mig um upplifun mína að gera þessa vinnu með eiginmanni mínum í 28 daga.  Smellið hér til að sjá 🙂 

MÍN STÖRF EINS OG ER: Ég starfa við heildræna samtalsmeðferð og sem orkuþerapisti í Rósinni, Bolholti 4, Reykjavík.  Einnig er ég yfirkennari á 4. ári í Barböru Brennan School of Healing í Bretlandi, og stunda ýmist námskeiðahald.  Í sumar hef ég einnig skapað margar hugleiðslur með tónlist frá eiginmanni mínum Jónasi Sen sem verða aðgengilegar á nýrri vefsíðu fljótlega. Frekari upplýsingar um mig má nálgast „hér.“ 

VERÐ: 39.500kr fyrir öll 8 skipti.  Greiðsla við skráningu.  Greiðslumöguleikar:  Með kreditkorti á netinu (ég sendi greiðsluhlekk) eða millifærslu.

Hlekkir á fyrirlestra og skyggnur eru sendar eftir hvert skipti til þáttakenda auk ýmis efnis til glöggvunar.  Þannig þú missir ekki af neinu ef þú getur af einhverjum ástæðum ekki mætt í einstaka skipti.Einnig er innifalið í námskeiði áskrift að hugleiðslum á vefsíðu Jóhönnu sem nota má að vild á meðan á námskeiði stendur. 

DAGSETNINGAR:  
Laugardagur 11. Sept. kl 10:00 – 12:30
Laugardagur 16. Okt. kl 10:00 – 12:30
Laugardagur 27. Nóv. kl 10:00 – 12.:30
Laugardagur 8. Jan. kl 10:00 – 12:30
Laugardagur 5. Feb. kl 10:00 – 12:30
Laugardagur 5. Mars. kl 10:00 – 12:30
Laugardagur 9. Apríl kl 10:00 – 12:30
Laugardagur 30. Apríl. kl 10.00 – 12:30 

STAÐSETNING:  Rósin, Bolholti 4, 4 hæð. 

SKRÁNING:  Sendið tölvupóst á: johannajonas03@gmail.comVegna samkomureglna þá er fjöldi þáttakenda takmarkaður og því mikilvægt að skrá sig sem fyrst. 

NÁMSGÖGN:  Mælt er með kaupum á bókinni Magic eftir Rhondu Byrne sem hefur fengist í Betra líf í Kringlunni eða hægt að kaupa á Amazon.  Eða Gratitude Works! eftir Robert Emmons sem hægt er að kaupa á Amazon.  Heimavinna er ekki skylda á þessu námskeiði, þó hún sé lögð fram.  Hver fer á sínum hraða.  Framkvæmd heimavinnu er samkvæmt löngun og ásetningi hvers og eins.   

MÍN VON: Von mín er að þið getið átt ánægjulegan og árangursríkan vetur með þessu margvíslega efni sem ég kynni.  Að þið fáið veglegan grunn og stuðning til að viðhalda góðri og sífellt betri líðan með þessari huglægu rækt og hækkun tíðni orkusviðsins sem iðkun þakklætis, og hin ýmsu tæki og tól, leiða af sér.

Það getur verið einmanalegt að iðka svona huglæga rækt einn og því gæti verið gefandi að hafa hóp sem kemur reglulega saman og veitir stuðning. Ég finn ástríðu hjá mér fyrir þessu því mér finnst þetta skipta gríðarlegu máli sem leið til betra lífs. 

Ég vil gjarnan deila reynslu og þekkingu með ykkur eftir mína 12 ára reynslu núna af námi og kennslu við Barböru Brennan School of Healing, sem og samtalsmeðferðum & störfum sem orkuþerapi í Rósinni, og um það bil 32 ára reynslu af huglægri og andlegri rækt. 

MEÐMÆLI:
„Einstaklega gefandi og ríkt námskeið.  Nær að sameina allt sem skiptir máli fyrir mann til að gera lífið ríkara. Góð tenging við fagleg rök.  TAKK.“  Herdís Jónasdóttir, hjúkrunarfræðingur

„Jóhanna er einstakur kennari og miðlari.  Á námskeiðinu er kafað djúpt innávið í fullkomnu trausti. “  María Reyndal, leikstjóri og höfundur

„Námskeiðið hjá Jóhönnu var einstaklega gott og gefandi. Heilandi að mæta í tíma og skilja orkufræðin á nýjan hátt. Einnig voru samtöl við aðra þátttakendur gefandi og hugleiðslur sem fygdu. Mæli mjög mikið með þessu námskeiði fyrir öll sem vilja auka meðvitund sína og næmi á sig sjálf og umhverfið sitt”.  Bjarni Snæbjörnson, leikari og athafnastjóri

„Þetta námskeið færði mér allskonar tæki og hugmyndir, og leiðir til að komast nær sjálfri mér.  Jóhanna skapaði dýrmætt og nærandi rými öryggis og samkenndar þar sem forvitni fyrir lífinu og töfrunum fékk að kvikna og blómstra.“  Gréta Kristín Ómarsdóttir, leikstjóri

„Námskeiðið hefur gefið mér innblástur í lífi og starfi.  Góðar upplýsingar um rannsóknir á starfsemi heila og hjarta hafa styrkt mig og mína andlegu vegferð. Lífsbreytandi fyrir mig.“  Gréta Konráðsdóttir

 „Námskeiðið hefur opnað á allt aðrar hugsanir.  Mér finnst ég takast á við daglegar áskoranir á allt annan hátt en ég var vön.  Ég mikla ekki lengur hlutina fyrir mér, kvíðinn hefur minnkað.“  Helga Jónasdóttir, fjármálastjóri

 „Námskeiðið hefur farið fram úr öllum væntingum.  Jóhanna er vel undirbúin og vinnur af mikilli fagmennsku.“  Rúna Kristinsdóttir

„Jóhanna hefur einstakt lag á að koma yfirgrips miklu efni til skila á einfaldan og áhugaverðan hátt.“  Sólrún Halldórsdóttir

. Ljós og kærleikur
Jóhanna

HELGARNÁMSKEIÐ: HENDUR LJÓSSINS 14-15 SEPTEMBER

HENDUR LJÓSSINS HELGARNÁMSKEIÐ 14-15 SEPTEMBER

Kæru vinir.

Það  gleður mig að kynna að ég verð með HENDUR LJÓSSINS HELGARNÁMSKEIÐ 14-15 SEPTEMBER NÆSTKOMANDI.

Einstakt tækifæri til að læra grunnaðferðir til heilunar sem og að kynnast eigin orkusviði og annarra.  Þetta námskeið nýtist öllum þeim sem til dæmis kunna og vinna við aðrar heilunaraðferðir, einnig Cranio Sacral, nudd og ýmislegt fleira.  Auk þess nýtist það öllum þeim sem vilja kynnast sjálfum sér og eigin orkusviði betur og til að hafa sterkari „heilunarnærveru“ fyrir sig sjálfan, aðra og í lífinu almennt.

hands_of_light_frontcover_large_5yvTgf29e5MbxOP

TÍMASETNING

Laugardagurinn 14. Sept. Kl 9-17 (til kl 18 fyrir þá sem vilja heyra meira um sjálfan skólann Barböru Brennan School of Healing)

Sunnudagurinn 15. Sept. Kl 10-17.  

(Athugið að þeir sem taka ekki þátt í námskeiðinu geta líka skráð sig eingöngu á fyrirlesturinn sem verður laugardagsmorguninn 14 sept frá 9-11.) 

Námskeiðsefni er eftirfarandi:

dreamstime_l_50413582

 Fyrirlesturinn “Hulinsheimar orkusviðsins.”

Farið verður í ýmsar orkuæfingar m.a. meðvitund um manns „kjarnakraft,“ Tan tien jarðtenging, öndun með litum, og æfingar sem virkja eigin hreyfiskynjun á orku til heilunar.  Allar þessar æfingar auka meðvitund um manns eigið orkukerfi og ástand þess.  Einnig verður farið í æfingar til að auka við eigin „háskynjun“ sem getur komið manni mjög til góða í lífsins vegferð.

Einnig verða fluttir aðrir tveir stuttir fyrirlestrar um helgina, annarsvegar um grunnheilunaraðferðina „Chelation“ (orkujöfnun) og hinn um „háskynjun.“  Kenndar verða verklegar leiðbeiningar fyrir þessa grunnheilun ásamt virkjun eigin orkustöðva til heilunar.  Síðan vinna tveir og tveir saman undir leiðsögn við að framkvæma (og þiggja) heilanir báða dagana.  

Auk þessa verður leidd hugleiðsla og farið yfir tækni til sjálfsheilunar.

Heilun

Námskeiðið kostar 22.500kr fyrir báða dagana.  Þeir sem geta komið með eigin nuddbekk á námskeiðið fá 10% afslátt.   Og ef þú ert að koma í annað skipti þá færðu líka 10% afslátt  Að mæta eingöngu á fyrirlesturinn frá 9-11 lau 14/9 kostar 2.500kr.

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt endilega láttu mig vita með tölvupósti sem allra fyrst þar sem pláss eru takmörkuð.   Netfangið er: johanna@heilunjohannajonas.isÉg mun þá senda um hæl útfyllingareyðublöð sem skólinn fer fram á að séu útfyllt af þeim sem vilja taka þátt í Hendur ljóssins námskeiði.  En þar er beðið um upplýsingar um heilsu og ástand viðkomandi þar sem þokkalega gott andlegt og líkamlegt jafnvægi er nauðsynlegt fyrir orku & heilunarvinnu af því tagi sem kynnt er á námskeiðinu.

Við móttöku á útfyllingareyðublaði bið ég síðan um skráningargjald sem væri 11.250kr annað hvort með kreditkorti eða millifærslu, og seinni greiðslan yrði í síðasta lagi miðv 11. Sept.  Einnig er auðvitað hægt að greiða allt námskeiðsgjaldið við skráningu með kreditkorti Ef greitt er með kreditkorti þá sendi ég viðkomandi greiðslubeiðni sem hægt er að greiða á netinu.

Ég vil taka fram að þetta námskeið er eftir ákveðnum stöðlum Barböru Brennan School of Healing og hef ég öðlast réttindi frá skólanum eftir mitt 7 ára nám þar til að kenna það. Auk þess hef ég núna kennt við skólann síðastliðna tvo vetur.

Ef þig langar að láta einhvern nákominn þér vita af þessu námskeiði sem kynni að hafa áhuga þá endilega áframsenda þennan tölvupóst á viðkomandi :).

Hér fyrir neðan er að finna nokkrar umsagnir um þetta námskeið:

„Hjartans þakkir fyrir kyngimagnað Barbara Brennan – námskeið sem Jóhanna Jóhannsdóttir leiðir af djúpri þekkingu, kærleika og visku og einstöku næmi og virðingu fyrir anda og efni. Þetta er praktískt námskeið sem leiðir þó inn á mystískar lendur. Það var einstaklega gott að vinna svona mikið með sterka jarðtenginu og hið mikla traust sem henni fylgir sem gerði þetta eðalnámskeið alveg kristaltært.“ Harpa Arnardóttir

„Frábært námskeið sem dýpkaði skynjun mína á heilun.  Jóhanna er frábær kennari. Takk fyrir mig.“ Edda Ólína Sigríður Jónsdóttir

„Skemmtilegt, vel undirbúið, áhugavert efni, notaleg aðstaða, ógleymanleg helgi.“ Arndís Ásta Gestsdóttir

Ljós og kærleikur

Jóhanna

Mynd af mér

NÁMSKEIÐ: TÖFRAMÁTTUR ÞAKKLÆTIS

TÖFRAMÁTTUR ÞAKKLÆTIS

Komiði sæl kæru vinir.

NÁMSKEIÐ

Langar þig að upplifa ef til vill betra haust og vetur en áður?  Langar þig að læra að bæta líf þitt til frambúðar?  Langar þig að öðlast betri líðan í lífinu, betri samskipti, betra heilbrigði og meiri nægtir?  Þá er þetta námskeið einstakt tækifæri!

Ef nógu mikil þáttaka næst langar mig til að fara af stað með námskeið núna laugardaginn 31 ágúst sem kallast TÖFRAMÁTTUR ÞAKKLÆTIS.  Aðdragandi þessa námskeiðs er mín reynsla af markvissri iðkun þakklætis samkvæmt bókinni Magic síðastliðið haust ásamt manninum mínum sem ég skrifaði síðan grein um síðustu áramót og sendi til ykkar og er á vefsíðunni minni „hér“.

gratitude7

Mér þótti það það merkileg reynsla og þessi vetur og sumar svo einstaklega gott og ánægjulegt með þessari áframhaldandi iðkun (þrátt fyrir ýmsar erfiðar áskoranir á tímabilinu) að mig langar núna til að deila þessari reynslu með öðrum og styðja við aðra sem myndu vilja kanna víddir þakklætis með mér sem og öðru sem ég get miðlað í átt að betri líðan og lífi.

Námskeiðið myndi samanstanda af því að hittast laugardaginn 31 ágúst frá 10-12 (12.30) í Rósinni, Bolholti 4, 4 hæð, og síðan einu sinni í mánuði fram að jólum og 4 sinnum eftir áramót fram að vori til að koma saman, bera saman bækur okkar, sjá hvað er að koma upp varðandi þessa iðkun, hvernig gangi, hvaða stuðning þið þurfið, og til að veita áframhaldandi fræðslu, upplýsingar & innblástur.            Nánari dagsetningar eru her að neðan

NÁMSGÖGN

Fyrir námskeiðið (eða í kringum fyrsta hitting lau 31/8) þyrftuð þið að verða ykkur úti um eintak af bókinni Magic, eftir Rhondu Byrne, sjá upplýsingar að neðan hvernig best er að nálgast það.  Eftir fyrirlesturinn/námskeiðið lau 31 ágúst myndu þáttakendur vinna sjálfir á sínum hraða þetta 28 daga prógram sem er í þessari góðu bók.  Síðan kæmum við saman eins og áður segir mánuði síðar og svo koll af kolli til að bera saman bækur, spurt og svarað o.s.frv. og veitt hvort öðru innblástur.

Athugið!  Einföld, auðveld og ekki flókin heimavinna!  Þetta 28 daga prógram af iðkun þakklætis í bókinni Magic er ekki flókið og þarf alls ekki að taka langan tíma á hverjum degi.  Það er heldur engin krafa að það þyrfti að gera það 28 daga dag eftir dag!  Ég geri mér grein fyrir miklum önnum oft hjá fólki og hver og einn myndi vinna þessa 28 daga á eigin hraða en þó með skuldbindingu að fara í gegn um það yfir veturinn og stunda markvisst iðkun þakklætis daglega á mjög einfaldan hátt með leiðum sem nefndar eru í bókinni eða sem ég mun fara yfir á námskeiðinu 31 ágúst og yfir veturinn.  Leiðir sem er auðveldlega hægt að innleiða inn í amstur og annir dagins! 

MÍN VON

Von mín væri að þið gætuð átt ánægjulegan og árangursríkan vetur með þessari iðkun og að þið fengjuð þar veglegan grunn og stuðning til að viðhalda góðri og sífellt betri líðan með þessari huglægu rækt og hækkun tíðni orkusviðsins sem iðkun þakklætis leiðir af sér.

Það getur verið einmanalegt að iðka svona huglæga rækt einn og því gæti verið gefandi að hafa hóp sem kemur reglulega saman og veitir stuðning. 

Ég finn ástríðu hjá mér fyrir þessu því mér finnst þetta skipta gríðarlegu máli sem leið til betra lífs og vil gjarna deila minni reynslu og þekkingu með ykkur eftir mína 10 ára reynslu núna af námi og kennslu við Barböru Brennan School of Healing, sem og samtalsmeðferðar & heilunarvinnu í Rósinni,  og um það bil 30 ára reynslu af huglægri og andlegri rækt.

Ég læt hér fylgja hlekk sem þið getið smellt á „hér“ til að skoða 7 vísindalegar sannaðar niðurstöður um gagnsemi þess að stunda þakklæti.

Verð er 24.000kr fyrir allan veturinn, 8 skipti, og dagsetningar eru eftirfarandi

Lau 31. Águst. 10-12 (12.30)                         lau 28. Sept. 10-11.30 (12)

lau 26. Okt. 10-11.30 (12)                                 lau 30. Nóv. 10-11.30 (12)

lau 11 jan. 10-11.30 (12)                                      lau 22. Feb. 10-11.30 (12)

lau 4. Apríl. 10-11.30 (12)                                    lau 9. Maí. 10-11.30 (12)

Það er auðvitað ekki krafa að þið mætið í öll skiptin.  Ef þið getið ekki mætt einhverjar dagsetningar þá er það alveg í lagi, en þið hafið aðgang að öllum þessum skiptum yfir veturinn og auðvitað gott að geta nýtt sér að mæta til að fá stuðning og innblástur í góðum hópi. En heildargreiðsla er 24.000kr sama hversu oft þið mætið.

SKRÁINING OG SKRÁNINGARGJALD

Ég bið ykkur um að láta mig vita sem fyrst ef þið viljið skrá ykkur með tölvupósti á johanna@heilunjohannajonas.is

Skráningargjald 12.000kr greiðist við skráningu annað hvort með kreditkorti (þá sendi ég á ykkur greiðslubeiðni með tölvupósti sem þið greiðið á netinu) eða millifærslu.   Seinni greiðslan greiðist í vikunni fyrir námskeiðið eða með kreditkorti í posa námskeiðisdaginn 31 ágúst.  Með þessum hætti getið þið dreift greiðslunni á tvo kortatímabil eða borgað með tveimur millifærslum sitthvorn launamánuðinn.  Auðvitað er líka hægt að greiða fyrir námskeiðið við skráningu að fullu.

KAUP Á BÓKINNI MAGIC

Magic -book pic

Bókina Magic er annað hvort hægt að nálgast á Kindle (hægt að kaupa hana á amazon.com (með því að smella á amazon.com hér að framan þá opnast hlekkur á bókina þar) sem Kindle útgáfu og annað hvort að hlaða því niður á Kindle lestrartæki eða á Kindle app sem hægt er að hlaða niður á snjallsíma eða ipad).  Einnig er hægt að kaupa bókina á amazon.uk (amazon í Bretlandi (ef þið smellið á linkinn að framan þá opnast hlekkur á bókina þar.)) og fá hana senda með einföldum hætti til landsins.  Það er ekki krafa að bókin sé komin í ykkar hendur fyrir lau 31 ágúst en það væri auðvitað betra svo þið getið strax hafist handa við að vinna þetta 28 daga prógram.  Bókin er því miður eingöngu til á ensku.

Athugið líka!  Ef þið komist alls ekki 31 ágúst en langar samt að vera með í vetur látið mig þá vita og ég skal kanna leiðir til að þið getið tekið þátt þrátt fyrir að missa af 31 ágúst.

Ég hlakka mikið til að taka þátt í þessari tilraun með ykkur með von um allt hið besta ykkur til handa J!!

Ljós og kærleikur

Jóhanna

Mynd af mér

TÖFRAMÁTTUR ÞAKKLÆTIS – GREIN – HUGLEIÐINGAR

TÖFRAMÁTTUR ÞAKKLÆTIS

AÐ IÐKA ÞAKKLÆTI
 Í mörg á hefur þakklæti verið mér ofarlega í huga.  Ég hef stundað það um árabil meira og minna að iðka þakklæti; að þakka markvisst Uppsprettunni, Ljósinu, Almættinu, Guði fyrir mína gæfu í lífinu í smáu og stóru; allt frá því að hafa rennandi vatn, mat að borða, peninga sem ég á þá stundina, rúmið mitt góða, tækifærin sem ég hef fengið sem og þann lærdóm sem ég hef dregið af erfiðum reynslum í lífinu o.s.frv.
 Ég hef fundið í gegn um árin hversu vel það lætur mér líða og hef í gegnum mína menntun og vinnu undanfarin ár verið meðvituð um rannsóknir á þakklætisiðkun og áhrif  hennar á líkama og sál.  Ég hef líka leitað að bókmenntum um þakklæti þar sem mér finnst þetta svo öflugt tól í tækjaboxi betra lífs, en þar finnst mér ég hafa komið tómhent niður og ekki fundið neitt markvert eða grípandi á síðustu árum.  Fyrr en nú!
 BÓKIN “MAGIC” (TÖFRAR) EFTIR RHONDU BYRNE

 Magic -book pic

Einn eða tveir yndislegir skjólstæðingar mínir bentu mér fyrir einhverju síðan á bókina Magic eftir Rhondu Byrne, en hún er sú þriðja í bókaröðinni The Secret (Leyndarmálið).  Þessi bók fjallar eingöngu um þakklæti frá hinum ýmsu sjónarmiðum og um iðkun þess.
 Loks núna í lok ágúst síðastliðnum var kominn tími og tækifæri til að lesa bókina og um leið og ég byrjaði að lesa þá fann ég að þarna var eitthvað mjög merkilegt á ferð. Auk þess að fjalla almennt um gildi þakklætis þá er í bókinni 28 daga prógram af þakklætisiðkun.  Á hverjum degi er gefið einfalt verkefni sem hægt er að innleiða í daglegt líf og hugmyndir  um mismunandi leiðir gefnar til að stunda þakklæti markvisst.
 Mér fannst þetta snilld og lagði til við manninn minn hvort við ættum að prófa þetta saman í mánuð.  Það lagðist vel í hann þar sem þakklæti er einnig mjög ofarlega á lista hjá honum í hans andlegu iðkun.  Þannig að stað fórum við.  Og mér fannst þetta svo mögnuð upplifun að ég finn mig knúna til að koma áhrifum þessa mánaðar á framfæri við hvern þann sem hlusta vill, ef einhver skyldi vilja skoða þennan möguleika til að upplifa betri lífsgæði.
 EKKERT HÁLFKÁK  OG AÐ STÝRA HUGANUM
 Ég er yfirleitt ekki þekkt fyrir neitt hálfkák í lífinu þannig ég fór svolítið alla leið þessa 28 daga.  Um leið og ég vaknaði á morgnana þá var fyrsta hugsunin, “takk fyrir”  eða “þakka þér”.  Ég fann að stundum vildi hugurinn leita í eitthvað kunnulegt far eða límast strax við eitthvað sem var í gangi daginn á undan eða á döfinni.  En þarna var ég markvisst að stýra huganum beint inn í að segja “takk fyrir”.  Og svo stýrði ég huganum áfram í að þakka fyrir allt það sem fyrir augu bar á hverjum morgni; takk fyrir góðan svefn eða þann svefn sem ég hafði þó fengið, takk fyrir dásamlegu sturtuna mína og hið undursamlega rennandi vatn sem einhver hefur haft fyrir að bora fyrir og leiða inn í hús; takk fyrir handklæðið mitt og fötin mín, húsið sem ég bý í, matinn sem ég var að borða, t.d. jarðaberin sem uxu einhverstaðar úti í heimi og einhver hafði fyrir því að setja þau í box og flytja til Íslands (!), takk fyrir manninn minn og dóttur hans, takk fyrir þennan magnaða líkama sem hefur borið mig alla leið í þessu lífi og er í sjálfu sér undur sem ég get ekki útskýrt o.s.frv.
 Á GÓÐUM DEGI
 Á góðum degi eftir svona morgun þá fór ég fljúgandi á rósrauðu skýi út í daginn, himinlifandi yfir öllum þessum stórkostlegu og oft einföldu hlutum sem ég hef afnot af á hverjum degi og hef  yfirleitt tekið sem sjálfsögðum hlut.  Hvernig gat ég tekið þeim sem sjálfsögðum!  Það er undur að hafa þessi forréttindi sem við yfirhöfuð lifum við á Íslandi.
 Svo hélt ég áfram inn í daginn með sterkum ásetningi að stýra huganum inn í markvisst þakklæti yfir öllu sem var með mér þann daginn, með verkefni dagsins úr bókinni Magic efst í huga.  Þau voru sem betur fer yfirleitt frekar einföld  svo hægt var að grípa þau og setja þau inn í annasama daga.  Þannig meira og minna allan daginn var ég að fylla hugann af þakklæti yfir smáu og stóru með fullt af nýjum vinklum og hugmyndum úr þessari frábæru bók.
 MISJAFNIR DAGAR
 Og áhrifin fannst mér ekki láta á sér standa.  Ég fann fljótlega að vellíðunarstuðullinn minn sem er yfirleitt ágætur reis margfalt.  Á góðum dögum sveif ég um annir dagsins svo óumræðilega glöð og ánægð að mér fannst það eiginlega fáránlegt, en svoleiðis var það nú samt.  Á miðlungsdögum lyftust dagarnir samt á mun hærra plan en annars hefði orðið.  Og á erfiðum, áskorandi dögum lyftust þeir þó upp í mun ásættanlegra og betra ástand með þeim sterka ásetningi að stýra huganum að öllu því sem ég gæti verið þakklát fyrir.   
 ÁHRIFIN
 Ég fann líka að ég varð fljótlega mun orkumeiri, einnig skýrari í huganum og átti auðveldar með að ná utan um allt sem þurfti að gera.  Ég á það til að vera stundum yfirþyrmd af öllu því sem liggur fyrir hjá mér í miklum önnum, en þarna fannst mér ég ná mun betri tökum á huganum og undirliggjandi streitu, sem og að hafa mun betri yfirsýn yfir verkefnin og annirnar.  Þó ég væri alls ekki að hugsa eins mikið um verkefnin og áður, þar sem allar hugsanir meira og minna fóru í að þakka fyrir J!  Og ég fann yfirhöfuð fyrir meiri ró hið innra.  Mér fannst andrúmsloftið á heimilinu mínu líka verða enn betra og viðmót fólks sem ég mætti yfir daginn breyttist sömuleiðis.  Mér fannst ég fá oftar ótrúlega góða þjónustu, fallegra viðmót og spontant gleði og kærleika sem kom mér á óvart.  Ég gleymi því ekki eftir eina eða tvær vikur af þessari iðkun að ég var að útrétta og hafði fengið frábæra þjónustu í einni verslun.  Keyrði svo að gatnamótum og hleypti manni á hjóli yfir gangbrautina og hann skælbrosti og smellti á mig fingurkossi á leið sinni yfir.  Mér fannst þetta svo skondið því þetta er ekki venjulegt viðmót sem mér finnst ég mæta á okkar góða landi og þakkaði auðvitað fyrir þessa skemmtilegu uppákomu!  Ég veitti því líka eftirtekt að mér fannst ég sofa betur, vakna auðveldar og  líða betur líkamlega.  Undanfarnar vikur finnst mér líkaminn líka vera sterkari en áður;  ég finn meiri léttleika líkamlega, huglægt, tilfinningalega og andlega.  Þó að ég hafi unnið einstaklega mikið í mér í fjölda ára og er yfirhöfuð frekar glaðleg og bjartsýn manneskja þá fann ég ótrúlegan mun sem mér þótti svo eftirtektarverður að ég finn mig knúna til að deila því með öðrum.
 STUÐNINGUR FRÁ MANNINUM MÍNUM
 Ég hef líka fundið mun á mínum framkvæmdarkrafti, áræðni, betri samskiptum, og líka af einhverjum ástæðum fundið meiri tíma til að hvíla mig og vera með sjálfri mér sem hefur komið mér á óvart í öllum mínum önnum undanfarið.  Og það sem mér fannst svo merkilegt við þessa upplifun var að ég gat borið þetta undir manninn minn og fengið stuðning í að halda að ég væri ekki að verða eitthvað biluð og afvegaleidd á einhverju bleiku glapsýnisskýi þakklætis!  Hann var meira og minna að upplifa nákvæmlega það sama sem gaf mér vissu um að ég væri ekki að verða eitthvað skrítin, heldur að þetta væri raunveruleg líðan.
 MÁ MANNI LÍÐA SVONA VEL?
 Annað sem kom mér á óvart voru hugsanir sem  komu upp um hvort það væri “í lagi” að líða svona vel.  Þetta væri nú ekki alveg “normalt” og að eitthvað slæmt hlyti nú að fara að koma fyrir.  Það gæti nú varla verið að staðaldri svona gott o.s.frv.!  Mér fannst áhugavert að verða vör við þetta innra “viðnám” sem kom upp við þessa dýpri iðkun sem vildi greinilega spyrna mér í gömul mynstur.  Ég þurfti því stundum að horfast aðeins í augu við sjálfa mig og skoða hvaða gömlu hugform og ímyndir væru í gangi sem segðu að mér mætti ekki líða “of vel”, að ég ætti það ekki skilið, eða það hreinlega mætti bara ekki því þá gæti eitthvað slæmt komið fyrir, sem eru gamlar hugsanir og skilaboð frá æsku.
 Á RAUNSÆIS NÓTUM
 Auðvitað er ég líka raunsæ, og það hafa alveg komið upp erfiðar áskoranir í mínu lífi á þessu tímabili sem um ræðir þar sem ég hef þurft að staldra við, skoða og vinna úr, sem og að leita mér hjálpar hjá mínum stuðningsaðilum til að skoða mín viðbrögð og annarra.  En á þessum tíma hefur mér fundist auðveldara að vinna úr slíkum áskorunum og hef mun fyrr náð minni fyrri gleði og vellíðan.  Erfiðar uppákomur og áskoranir virðast ekki hafa rist alveg eins djúpt, skrápurinn orðið öflugri gegn erfiðu ytra áreiti og viðkvæmu blettirnir mínir ekki eins áþreifanlegir.  Ég er líka meðvituð um að áskoranir munu halda áfram að koma í lífinu en mér finnst ég sterkari á velli með þetta öfluga tæki til að takast á við þær.
 HVAÐ EF ALLIR IÐKUÐU ÞAKKLÆTI?
 Ég hef stundum hugsað á þessu tímabili: Hvað ef allir myndu nú iðka þakklæti á svona markvissan hátt?!  Hvernig væri okkar þjóðfélag þá?!  Hvernig væru almenn samskipti og almenn líðan?!  Mig grunar að við tökum oft okkar almennu gæfu og góðu lífsskilyrði sem sjálfsögðum hlut og borðum okkar mat, notum okkar tölvur, internetið, heita vatnið og rafmagnið án þess að hugsa útí hvað við erum ótrúlega heppin!  Í hvert skipti sem ég fer núna út í Bónus þá fer ég stundum í ákveðna andakt yfir þessum allsnægtum sem þar eru!  Ég finn þakklætið gagntaka mig að ég þurfi nú ekki að fara út að veiða eins og forfeður mínir eða bíða marga mánuði eins og foreldrar mínir eftir að fá epli og appelsínur á jólunum!  Hvílíkt lán!  Og þó maður eigi ekki endilega milljónir í bankanum þá finnst mér ég búa við ótrúlegt ríkidæmi og það er svo gott að líða þannig!
 FRÁ ORKULEGU SJÓNARMIÐI
 Sem meðferðaraðili sem vinnur með orku allan daginn þá hef ég líka tekið eftir hvernig þessi iðkun þakklætis virkar á orkukerfið.  Það að stýra huganum á svona markvissan hátt hefur gríðarleg áhrif á huglæga orkusviðið okkar, sem í kjölfarið hefur mjög sterk áhrif á tilfinningasviðin, og hvort tveggja hefur sterkari áhrif á líkamann en okkur grunar.  Betri líkamleg og tilfinningaleg líðan hefur síðan endurvarpandi áhrif á huglæga sviðið og almenn tíðni orkusviðsins eykst til að mynda betra jafnvægi og skapa betri almenna líðan.  Orkulega hefur þetta svo líka áhrif á umhverfið þannig að öðrum líður betur í nærveru manns.  Nærvera og orkulegt ástand hefur mun meiri áhrif á umhverfið en okkur grunar, því öll erum við að spila saman í einni stórri orkusúpu!  Þar að auki tengir iðkun þakklætis saman huga og hjarta.  Þakklæti er mjög hjartalæg iðkun og virkjar sterkt tilfinningar í hjartaorkustöðinni og galopnar hana.  Það að koma jafnvægi á huga og hjarta hefur verið sannað með rannsóknum að hefur djúp og sterk árhif á ónæmiskerfið, almennan hamingjustuðul og betri samskipti.
 NÚVITUND OG UPPÁHALDS TÆKI Í TÆKJAB0XINU
 Ég hugsaði líka á þessum tíma að þessi iðkun þakklætis væri ein besta leiðin sem ég hefði kynnst til að koma mér inn í núið og styrkja mína “núvitund.”  Ef ég fann að hugurinn var farinn að reika og koma jafnvel upp með erfiðar hugsanir á stundum þá beindi ég huganum strax að því sem ég gæti verið þakklát fyrir í umhverfi mínu þá stundina og kom þannig mínu huglæga ástandi beint inn í núið, núllstillti huga minn og jók minn vellíðunarstuðul samtímis.  Ég verð að segja að þessa stundina eru mín uppáhalds tæki í mínu tækjaboxi til betra lífs og til að auka mína með-vitund:  MARKVISS IÐKUN ÞAKKLÆTIS, Hugleiðsla, og Ho´oponopono heilunarbænin “mér þykir þetta leitt, fyrirgefðu, takk fyrir, ég elska þig, (I´m sorry, Please forgive me, Thank you, I love you),”  sem og auðvitað að hlúa að góðu matarræði, hreyfingu, hvíld, að fylgja minni ástríðu í lífinu og að stunda bænir þegar ég þarf á þeim að halda o.s.frv.
(Upplýsingar um Ho´oponopono má finna á Youtube og hér er grein um þetta kerfi http://www.self-i-dentity-through-hooponopono.com/assets/who-english-abridged.pdf )
(Joe Vitale skrifaði líka bók um Ho´oponopono og kynni hans af Hew Len sem heitir “Zero Limits”.  Viðtöl við Joe Vitale og Hew Len má líka finna á Youtube.)

 Ég hef stundað sjálfseflingu og huglæga rækt nú í hartnær 30 ár.  Ég hef einnig kynnt mér mjög mikið varðandi mataræði og rækt líkamans, sem og virði djúprar tilfinningalegrar vinnu á heilsu líkama og sálar.  En ég  hef ekki orðið svona áþreifanlega vör við áður hvað þessi huglæga rækt við iðkun þakklætis og þessi tenging huga og hjarta getur lyft öllum þessum þáttum á þetta hærra plan og haft þessi samþættandi áhrif.  Eins og maðurinn minn orðaði það þá hefur honum fundist hann vera hamingjusamari á þessum undanförnum vikum en yfirhöfuð áður og stundum fundist hann bókstaflega upplifa að líf hans sé  “himnaríki á jörðu” með þessari iðkun.

OG ÞANNIG ER NÚ ÞAÐ!
 Og þannig er nú það!  Af þessari lesningu allri þá fer það ekki á milli mála að ég er heilshugar að mæla með þessari bók sem og markvissri iðkun þakklætis sem ég tel á þessu augnabliki vera einn af hornsteinum góðrar líkamlegrar og andlegrar heilsu. Huglæg rækt tekur auðvitað tíma.  Það tekur tíma að ná stjórn á huganum og hugsunum sem stundum þeytast um og draga mann hingað og þangað. En æfingin skapar meistarann og að mínu mati þá er markviss iðkun þakklætis stórkostlegt tæki til  að stýra huganum og manns eigin orku; að “velja” markvisst það innra ástand sem maður vill tileinka sér; að vinna sig markvisst í áttina að því þegar erfiðleikar steðja að og kannski jafnvel á stundum að upplifa “himnaríki á jörð.”
 Með ljósi og kærleika
Jóhanna  

Denali National Park in autumn, Alaska, USA, North America
Denali National Park in autumn, Alaska, USA, North America

2 PLÁSS LAUS Í JÚNÍ (!!) Á HIÐ MAGNAÐA 3 ÁRA PRÓGRAM PATRICIU WHITEBUFFALO Á ÍSLANDI 2019!

Soul Retrieval pic 2

 Það gleður mig láta vita af því að það er hægt að bæta 2-3 við í námsprógramið hennar Patriciu Whitebuffalo, WALKING THE SHAMAN´S PATH, 12-16 júní!

Fyrsta lotan sem var í lok jan síðastliðnum var að mínu mati algerlega stórkostleg. Ég læt hér fylgja að neðan ummæli mín og lýsingu á henni sem og meðmæli fjögurra þáttakenda.

Ef þú skyldir hafa áhuga þá bið ég þig að senda sem allra fyrst tölvupóst á hana Patriciu, pwb@cruzio.com svo hún geti tekið frá pláss fyrir þig.  Hún mun síðan senda til þín umsókn og greiðsluupplýsingar. Allt umsóknarferli fer í gegn um hana.

Það er mikilvægt að sækja um og greiða fyrir 1. maí næstkomandi.  Það er vegna þess að hún mun veita nýjum þáttakendum 3 fría skypetíma í maí til að koma þeim inn í námsefnið og seinnipartinn þri. 11. júní þá mun hún halda sérkennslu fyrir þá sem eru að koma inn í þeirri heilunartækni sem kennd var í lok janúar.

Ef einhver vill einnig vita meira um prógramið áður en sótt er um þá veitir hún líka frían skypetíma fyrir það.

Ég læt líka fylgja með upplýsingar frá Patriciu að neðan um þennan möguleika að koma inn í prógramið núna, en þar nefnir hún að hægt sé að koma inn í þessa lotu nr. 2 í júní án skuldbindinga um að halda áfram.  Og eftir það er alltaf eingöngu skuldbinding í eitt ár í einu. Endilega skoðið betur að neðan.

Það er stórkostlegt tækifæri hér á ferð til sjálfsþroska og heilunar!  Þeir eru heppnir sem hafa færi á að nýta sér það.

Ykkur er líka velkomið að hafa samband við mig ef ykkur vantar frekari upplýsingar á johanna@heilunjohannajonas.is . Frekari upplýsingar má líka finna á vefsíðu Patriciu hér:  http://beheavenonearth.com/shamanic-programs/

UMSÖGN MÍN OG LÝSING Á FYRSTU LOTUNNI Í JAN:

“Mér fannst þessi fyrsta lota algerlega stórkostleg!  Orkan var mögnuð og hópurinn frábær!  Það var dásamlegur kraftur í öllu sem var gert og svo gefandi að sjá hvað allir tendruðust upp af ljósi og kjarnaorku eftir sem leið á dagana.

Til að lýsa í mjög grófum dráttum þá var farið í “að endurheimta sálarparta” (Soul retrieval) á hverjum degi, 2svar til 3svar og stundum einusinni, og eftir sum “ ferðalögin” var unnið með það sem kom fram hjá einstaklingum öll saman.  Það var oft ansi magnað.  Svo voru þarna líka flottir fyrirlestrar, sýnikennsla, góðar umræður og unnið í öllum hópnum með margt sem kom fram.  Einnig var krafturinn magnaður upp á stundum með sameiginlegu hring pow wow með trommum og hristum.  Í þetta skiptið var líka unnið með “Austrið” og að taka inn þann heilunarmátt sem þar býr og fólst í seremóníu þar sem unnið var í minni hópum.  Það er varla hægt að lýsa í orðum hvernig það var að upplifa í eigin skinni og vera vitni að hjá öðrum.  Síðan var kennt um samsetningu orkusviðsins og lærð grunnheilun út frá fræðum Barböru Brennan (sem skrifaði Hendur Ljóssins) með shamanísku ívafi, og sem verður útfærð meira og meira í hvert komandi skipti.

Sem kennari sjálf um þessar mundir í Barböru Brennan School of Healing þá fannst mér þetta mögnuð samþætting á aðferðum sem eru kenndar þar og Shamanisma.  Og náttúrukrafturinn sem fylgir Shamanismanum er magnaður ef vel er kennt og farið með (eins og gert er hér).“

Upplifanir (umsagnir) þeirra þriggja hér að neðan sem fylgdu með pósti Patriciu eru ansi lýsandi fyrir hvernig tilfinningin var yfirhöfuð. Þannig að ég mæli sannarlega heilshugar af öllu hjarta með þessu prógrammi og einstaka tækfæri á Íslandi til að fara í gegn um magnað sjálfsumbreytandi ferðalag.”

 “Námskeiðið hjá Patrica var algjörlega magnað og það er erfitt fyrir mig að koma orðum að því hvað þetta gerði fyrir mig. Ég upplifi mjög mikinn aukinn innri styrk, gleði og mikla orku sem ég hafði tapað á lífsleiðinni en endurheimti með heiluninni á þessu námskeiði. Það er mjög vel að námskeiðinu staðið, 3 kennarar sem halda utanum það ásamt Patriciu sem er mikill stuðningur fyrir nemendur.  Ég er óendanlega þakklát fyrir að hafa haft tækifæri til að fara á þetta fyrsta námskeið og nú er ekki aftur snúið og stefni ég á að klára þetta 3 ára nám.     Guðný”

 “Ég fór á 5 daga shamanic námskeið  hjá Patriciu í janúar 2019 með litla vitneskju um hvað ég væri að fara út í,  eftir 5 daga með henni og öllum dásamlegu kennurunum og nemendunum þá var ekki aftur snúið ég er búin að bóka mig í framhald.  Ég upplifði hluti og atburði og sterka tengingu við orkuna sem er allt um kring.  Ég hefði ekki trúað hversu orkan getur verið mögnuð og hvað það er auðvelt að fara í mögnuð ferðalög í aðrar víddir að leita að svörum. Get ekki beðið eftir næsta hitting sem er í júní. Mæli með ef þú er andlega þenkjandi, þetta breytir lífinu þínu.
    Ása”

“Fyrir námskeiðið var ég búin að lesa nokkrar af þeim bókum sem mælt var með. Ég sá fram á að geta hreinsað út ýmislegt sem hefur haldið aftur af mér og skapað rými fyrir 
eitthvað nýtt. Það hefur algjörlega gengið eftir og það kom mér á óvart hversu auðvelt það er, með þeim aðferðum sem okkur eru kenndar. Þetta tekur á en er líka skemmtilegt og ég finn fyrir ávinningnum.   
Ingibjörg”

“Sjamaniskar slóðir..

Ég þakka forsjóninni fyrir að hafa leitt mig á þetta námskeið.

Náttúran með öllum sínum elementum er minn helgistaður. Þar sem Móðir-jörð og Faðir-himinn ráða ríkjum. Án þess að vera meðvituð, þá fylgdi Skepnan/ég, afkvæmi Sköpunar, þessum ósýnilega sjamaniska slóða af eðlishvöt. Þreifaði mig áfram í rökkrinu í mikilli þörf eftir andlegri næringu, með innsæið eitt að leiðarljósi. Öll skynfæri þanin, því mikilvæg skilaboð eða leiðsögn gátu borist til mín með hvísli vindsins, góð fyrirheit í geisla sólar eða huggun í vætu regnsins sem skolar burtu tárin. En svo birti upp, því Patricia White Buffalo flutti dýrmæta glóð úr eldstæði/varðeldi forfeðra sinna hingað til Íslands. Sú glóð tendraði nýjan eld, sem logar nú glatt í sterkri orku landsins. Bjarminn blikaði í augum okkar sem sátu nærri og yljuðu okkur við varmann. Nú er leiðin mín upplýst og vörðuð. Ég geng hana örugg, í takt við eigin samhljóm.

Það er mér ómetanlegt að fá leiðsögn og hafa samfylgd á þessari vegferð lífsins.

Ég er innilega þakklát og hlakka til framhaldsins.

Vigdís Viggósdóttir”

EKKI MISSA AF ÞESSU EINSTAKA TÆKIFÆRI EF HJARTAÐ SEGIR JÁ!

HÉR FYRIR NEÐAN ER UMSÖGN EINNAR SEM HEFUR FARIÐ Í GEGN UM PRÓGRAMIÐ HENNAR Í FRAKKLAND (OG ÞAR FYRIR NEÐAN ALLAR UPPLÝSINGAR TIL AÐ SÆKJA UM):

Before I became a teacher, I was a student/apprentice of Patricia’s Programme in Montpellier. Although I had all this Brennan training and had done a lot of self growth already, this programme was another big breakthrough in my life; It brought joy, fantasy, the ability to connect to all that is, not only up there in the sky but down here all around, the minerals, the vegetals, the animals, the humans and everything created by humans. Spirit, love and joy is everywhere and I only need to reconnect my pure child imagination and innocence to touch back my original being/soul. I also gained the most precious warmhearted family, the rainbow tribe in France, a deep genuine intimate connection, one seldom finds in ordinary life. If you are after re-enchantment in your life, there you are!  “Francoise Bonnal”        Fleiri umsagnir er að finna á vefsíðu Patriciu og líka hér neðst í póstinum.

DAGSETNINGAR OG VERD:

Dagsetningar fyrir fyrsta árið eru:  Fyrsta lota 30 jan – 3 feb, önnur lota 12-16 júní og þriðja lota 2-6 okt.
Verðið er á skalanum $2.975 – $3.475 fyrir hvert ár.  Það þýðir að ykkur er frjálst að borga allt frá minnstu upphæð $2.975 og upp í þá mestu $3.475 allt eftir ykkar fjárhag og getu.  Hægt er að greiða allt árið í einu EÐA að hafa samband við Patriciu beint til að athuga með greiðslufyrirkomulag ef þörf er á að dreifa greiðslum.

Það er að mínu mati algerlega einstakt tækifæri að Patricia sé tilbúin til að skuldbinda sig við að koma hingað til Íslands með þetta prógram og algerlega einstakt tækifæri fyrir Íslendinga að sækja þennan kúrs hér sem hefur eingöngu verið hægt að sækja til Evrópu og Ameríku.  Patricia auglýsir lítið fyrir utan að hafa samband við þá sem hafa sótt námskeiðin hennar og segir að prógramið hafi dafnað undanfarin ár í Evrópu og Ameríku eingöngu út frá því að nemendur hafi mælt með því við annað fólk.  Þau myndu svo sannarlega ekki gera það nema það væri magnað og lífgefandi.

Það er líka ekki sjálfgefið hversu margir aðstoðarkennarar verða með.  Þær koma þrjár með Patriciu að utan og ég mun líka að aðstoða þannig hlutfall kennara á þáttakendur er einstakt.
Til að sækja um þá þurfið þið að senda Patriciu tölvupóst á pwb@cruzio.com til að taka frá pláss og biðja hana að senda ykkur umsókn (sem og að spyrja einhverra spurninga sem þið gætuð haft, t.d. varðandi greiðslur og annað).  Þið fyllið síðan út umsóknina og sendið henni tilbaka.  (Ég get líka auðvitað svarað einhverjum spurningum svo framarlega sem ég viti svörin ;)).  Athugið að klára að sækja um fyrir 1 maí!

Frekari upplýsingar um prógramið sem og um Patriciu sjálfa er hægt að finna  á vefsíðu Patricu hér:  http://beheavenonearth.com/shamanic-programs/

Þetta tækifæri gæti verið lífs-umbreytandi!

Patricia Whitebuffalolady hugs healer
Hér fyrir neðan er kynning á prógraminu sem Patricia sendi út síðastliðið haust.

Ljós og alltumlykjandi kærleikur til ykkar og þið látið mig endilega vita ef eitthvað er!

Jóhanna

Greetings,
Komiði sæl öll sömul.
I like to invite you join us on a exciting journey of self-transformation and healing through Shamanism. I believe it will be an exceptionally magical experience with the amazing power of the  Spirits of your Mother Island Iceland. I have experienced their power to enhance the work in the two workshops I have offered. I cannot not wait to work with them again with you. We will also have four assistant teachers joining us Aremea, Barbara Schuldt, Cathy Crick and Johanna Jonas (will translate if needed).
Mig langar að bjóða ykkur að koma með á mjög spennandi ferðalag af sjálfs-umbreytingu og heilun í gegnum Shamanisma.  Ég hef trú á því að þetta verði alveg sérstaklega töfrandi upplifun með hinum mögnuðu kröftum þeirra anda sem búa í eyjunni ykkar Íslandi.  Ég hef upplifað þeirra mátt til að ýta undir og styrkja þá vinnu sem átti sér stað í þeim tveim námskeiðum sem ég hef boðið upp á.  Ég get ekki beðið eftir að vinna með þeim og ykkur aftur.  Við munum hafa fjóra aðstoðarkennara með okkur: Aramea, Barbara Schuldt, Cathy Crick og Jóhanna Jónas (sem mun þýða yfir á íslensku eins og þörf krefur).
 
I am offering a FREE SESSION to experience my work and to talk about the Program on Skype or Zoom (If you are interested just give me a good time and date for you. (I am 7 hours behind Iceland time.)
Ég býð upp á frían tíma á Skype eða Zoom fyrir þá sem hafa áhuga svo þið getið fengið reynslu af vinnu minni og til að ræða um þennan fyrirhugaða kúrs á íslandi  (ef þið hafið áhuga sendið mér tíma & dagsetningu sem hentar ykkur og við setjum upp fund (ég er 7 tímum á eftir Íslenskum tíma.))
 
Love (kærleikur) Patricia White Buffalo

~WALKING THE SHAMAN’S PATH ~ Reykjavik, Iceland, 2019~
You are INVITED TO APPLY
Class #1 January 30-Feb.3, 2019 / Class #2 June 12-16, 2019 / Class #3 October 2-6, 2019
I am very excited to introduce our Shamanic Personal Transformational  & Training Program „WALKING THE SHAMAN’S PATH“!
A unique, extensive program that includes all the basic teachings of the shamanic practice, but more importantly,
A POWERFUL TRANSFORMATIONAL LIFE HEALING EXPERIENCE!
 
This Program can also be taken solely for personal healing & self-transformation, while utilizing the Shamanic Training in your
existing profession. In training to be present for another you learn to be more present for yourself, humanity and the planet.
Please join us on this transformational Journey!
mad PWB
With many blessings,
Patricia White Buffalo
 

                       GRADUATE TESTIMONY
 
„Patricia White Buffalo’s Walking the Shaman’s Path Program has been deeply transformative and healing on a
personal level as well as exceptionally good training for aspiring Shamanic practitioners.  As I walked the medicine wheel,
I reclaimed aspects of my soul and healed the wounds of lifetimes past and present. Amazing!  I cannot recommend this program
emphatically enough.“
~Juli Gumbiner, Program Graduate, Boulder Creek, CA~
 
I have changed dramatically in the past couple years and send tears of gratitude to Patricia and her Program.
Being in her program has allowed me to grow from the roots up with all the elements in favor to grow abundantly. I can’t express my
gratitude enough. I feel confident, powerful, compassionate and humble. Filled with love and acceptance of myself and all beings. I’ve
learned to be raw and authentic not caring anymore about judgments or living stories or illusions of what’s to be accepted or the norm.
This program has opened gateways and portals into abilities that are far more freeing and authentic that I even understood was lacking.
The autonomy and freedom that comes with this growth is pure joy. I want to thank Patricia for my foundation. It’s a beautiful strong
foundation and with this opportunity I can now make informed decisions on how I can move forward and expand and grow.
~Heather Jacoby, Santa Fe, New Mexico~

 

P1000148

PATRICIA Á ÍSLANDI!

Það er að mínu mati algerlega einstakt tækifæri að Patricia sé tilbúin til að skuldbinda sig við að koma hingað til Íslands með þetta prógram og algerlega einstakt tækifæri fyrir Íslendinga að sækja þennan kúrs hér sem hefur eingöngu verið hægt að sækja til Evrópu og Ameríku. 

Patricia auglýsir lítið fyrir utan að hafa samband við þá sem hafa sótt námskeiðin hennar og segir að prógramið hafi dafnað undanfarin ár í Evrópu og Ameríku eingöngu út frá því að nemendur hafi mælt með því við annað fólk.  Þau myndu svo sannarlega ekki gera það nema það væri magnað og lífgefandi.

4 AÐSTOÐARKENNARAR

Það er líka ekki sjálfgefið hversu margir aðstoðarkennarar verða með.  Þær koma þrjár með Patriciu að utan og ég mun líka aðstoða þannig að hlutfall kennara á þáttakendur er einstakt.  

PUPPYPILE

UMSÓKNIR OG HAFA SAMBAND

Ekki hika við að hafa samband við mig  á netfangið johanna@heilunjohannajonas.is ef þið viljið að ég sendi ykkur frekari upplýsingar með tölvupósti um prógramið eða ef þið viljið spyrja einhvers, og ef ykkur vantar einhverja aðstoð!

Til að sækja um þá þurfið þið að senda Patriciu tölvupóst á pwb@cruzio.com til að lýsa yfir áhuga ykkar að skrá ykkur og biðja hana að senda ykkur umsókn (sem og að spyrja einhverra spurninga sem þið gætuð haft, t.d. varðandi greiðslur og annað). Þið fyllið síðan út umsóknina og sendið henni tilbaka.  Þið getið líka látið hana vita þegar þið sendið inn umsóknina að þið viljið prófa fyrstu lotuna, 30. jan-3. feb, til að ákveða ykkur um frekara framhald.  

Frekari upplýsingar um prógramið sem og um Patriciu sjálfa er líka hægt að finna  á vefsíðu Patricu hér:  http://beheavenonearth.com/shamanic-programs/

AÐ FYLGJA INNRA HVÍSLI

Ef þið finnið eitthvað innra hvísl sem hvetur ykkur til að skoða þetta þá vona ég að þið hlustið á það ;). Það gæti verið lífs-umbreytandi.

Hér fyrir neðan er pistill frá Patriciu Whitebuffalo um prógramið með íslenskri þýðingu ;).

FRÉTTIR AF MÉR

Í öðrum fréttum af mér er það  helst að ég held áfram þennan vetur að kenna í Barböru Brennan School of Healing ásamt því að starfa í fullu starfi í Rósinni.  Ég fer út í kennslulotur annan hvern mánuð viku í senn en er á öðrum tímum í Rósinni, Bolholti 4 með mína samtalsmeðferð og Brennan heilun.

Jóhanna Jónasdóttir

kærleikur og ljós.

JÓHANNA

 

LAYINGDOWN LOOKING UP SMILE

Spennandi helgarnámskeið 11.-12. ágúst 2018. SINGING FROM WITHIN AND ENERGY WORK

Singing from within

Kæru vinir.

Ég kynni með gleði mjög spennandi helgarnámskeið sem verður helgina 11.-12. ágúst, SINGING FROM WITHIN AND ENERGY WORK.  Kennarar verða Ilse Scheers og ég, Jóhanna Jónasdóttir.

Small-Photo Ilse_round black small newJóhanna Jónasdóttir

Ilse Scheers er vinkona mín og kollegi frá Belgíu.  Hún kom hér í júlí á síðasta ári og var með stutt kvöldnámskeið sem hét Singing With Your Inner Voice.  Það var fullt hús og tókst alveg frábærlega. Margir voru lengi á eftir að senda henni skilaboð um breytingar sem þau fundu á þeirra tjáningu og líðan.

Út frá þeirri reynslu langaði okkur að standa saman að helgarnámskeiði þar sem farið væri dýpra í vinnu með orkusviðið og röddina.  Að nota tjáningu hennar sem leið til að losa um innri blokkeringar/hindranir og finna/styrkja manns eigin innri rödd.

Á námskeiðinu verður unnið út frá orkuvitund, orkustöðvar virkjaðar og leiðir kannaðar til að hreinsa og efla orkusviðið á lífgefandi hátt.

Markmiðið væri að auka eigin innri styrk til tjáningar og vera sá sem maður er út frá eigin kjarna; að auka sjálfstraust í að fylgja sér og manns eigin leið í lífinu og vera sannur og trúr sjálfum sér.  Einnig að auka sjálfsþekkingu um hvað það er sem hindrar manns eigin tjáningu og framgang í lífinu.

Endilega sjá nánari lýsingu á námskeiðinu hér að neðan á ensku en námskeiðið sjálft verður á ensku þó auðvitað verði alltaf hægt að fá íslenskar skýringar hjá mér eins og þarf.

Ilse og ég höfum báðar varið áratugum í djúpa sjálfsvinnu og útskrifuðumst báðar frá Barböru Brennan School of Healing eftir margra ára nám (sjá nánar um okkar feril hér að neðan og á vefsíðum okkar hér um mig og um hana hér www.ilsescheers.com.) Við höfum báðar líka áratuga reynslu í vinnu með sjálfstjáningu, hún sem söngvari og ég sem leikkona, sem nýtist okkur líka sérlega vel í svona heildræna radd/orkuvinnu.

Það er mín trú að þetta verði einstaklega lífgefandi og sjálfseflandi helgi.  Við erum báðar mjög spenntar að geta miðlað af okkar miklu þekkingu og reynslu öðrum til framdráttar :).

Ef þig langar að vera með endilega sendu mér tölvupóst á johanna@heilunjohannajonas.is eða sendu mér skilaboð í gegn um Facebook síðuna mína Brennan heilun Jóhönnu Jónasar.

Námskeiðið verður haldið í dásamlegu umhverfi í: Hótel Kríunesi, Vatnsenda í Kópavogi.

Verð er: 36.900 kr með inniföldum hádegismat (himneskri súpu og brauði) báða dagana.

Skráningargjald er 15.000 kr sem greitt er við skráningu (einnig hægt að fá frest á því), og rest greiðist fyrir 1. águst eða á þeim degi)

Lengd:  Laugardagur 9:30 – 17:30. Sunnudagur 9:30 – 17:00.

Hlakka til að heyra frá þeim sem hafa áhuga og hlakka til að eyða frábærri helgi með frábæru fólki!

kærleikur og ljós.

Jóhanna

Nánari lýsing á námskeiðinu á ensku:

The workshop is all about getting more in contact with your Self, through Singing from within and Energy Work. It is about feeling what you sing, singing who you are, moving with your voice, experiencing more energy flow in your body through movement and sound!

Energy Work is a bundle of tools that enhances your energy to move and allows you to experience more healthy and deeper flow in your body and energy field. We tend to think too much, to rationalize our experiences instead of really experiencing them. The tools vary from real body movement, to specific energetic exercises, to singing.

Singing from within is a very powerful and totally natural tool to move your energy. And combined with energy work, we touch upon the different levels/frequencies so that the (sound of your) voice will move through all of your energy levels. The more you ground into your body, the more you embody your singing, the more you embody who you are and that is in essence what brings ultimate pleasure in life!

So whether it is that you want to feel more of you, become more of you, sing in a more embodied way, all these reasons are good to come and join! It will have an impact that will last long after and it will help you choose the right directions in life, fully experience the life that you choose, your life, in connection with your soul.

You really don’t need to be a professional singer or have any singing experience for that matter yet also singers will totally enjoy the approach. It is about aliveness, deepening the embodiment. For people who are not used to sing but really like to do it, they will discover their voice and be surprised of the effect of it coming out, it is truly life changing***

Nánar um Ilse:

Ilse Scheers is life coach and a Brennan Healing Science Practitioner who supports people from all over the world. She studied Applied Economics and worked in the Contemporary Art Business for 20 years as a Managing Director. Keen on high energy work she followed several professional trainings, check www.ilsescheers.com for more. In 2012 she started her own business as a healer, coach, teacher and HR-consultant.

She has her own Center for Energy Work near Antwerp (Belgium) where she guides people on the personal as well as on the group level. She organizes different workshops and events all over the world and also offers a 3-year training in Energy Work.

Ilse Scheers is also a singer songwriter, her artist name is GRACE, she is currently working on her 2nd album, for all info check www.gracemusic.be

Nánar um mig á ensku:

Johanna Jonasdottir is a Holistic Conversational Therapist and a Brennan Healing Science Practitioner with a thriving full time practice in Reykjavik Iceland.  She is also a trained teacher from Barbara Brennan School of Healing and is currently teaching on the 4th year in the US school, located in Florida.  She studied at Barbara Brennan School of healing for 7 years before coming a teacher at the school.  She also organizes workshops in Energy Work and Healing.  Johanna has a BA degree in acting and worked as an actress for 25 years and in many facets of theatre production, as well as a belly dance teacher and restaurant manager.  Her passion is an unending interest in inner work, personal growth and self-healing and she seeks to inspire people from all over the world. 

Ilse Scheers

Shamanic-Return To Wholeness – Soul Retrieval Workshop í lok Júní!

FBAd#2Iceland

Kæru vinir.

Það er mér einstök ánægja að kynna magnað Shamanískt helgarnámskeið sem verður helgina 30 júní – 1 júlí (auk fös kvölds 29 júní).  Þetta sama námskeið var haldið í lok sept á síðasta ári og tókst svo frábærlega að það var ákveðið að halda það aftur.  Það heitir Return To Wholeness- Soul Retrieval Workshop og er leitt af frábærum kennara af indjánaættum frá Californíu, sem heitir Patricia White Buffalo.  Shamanismi er aldagömul jarðtengd andleg leið, upprunnin hjá frumbyggjum í Ameríku og víðar, þar sem heilandi jafnvægi er fundið milli himins og jarðar.  Í veröld Shamanisma er allt andi: himinn, jörð, náttúruöflin, dýr og allt sem í þessum heimi er.  Hver þáttur hefur sína eigin orku og heilunarmátt og leitast er við að efla tengsl náttúrunnar, hins jarðneska og hins andlega, himneska,  innra sem ytra.

  Ég og Björg Einars meðferðaraðili fórum á þetta námskeið haustið 2013 í London og okkur fannst það svo stórkostlegt að við ákváðum að biðja Patriciu að koma með það til Íslands.  Okkur langaði svo að leyfa öðrum á Íslandi að upplifa þessa mögnuðu helgi.  Ég hef sjaldan verið jafn kraftmikil, sterk, jarðtengd og glöð eftir nokkuð annað helgarnámskeið!

Þetta námskeið var síðan haldið hér á landi í september síðastliðnum og tókst stórkostlega.  Var mögnuð og heilandi upplifun fyrir þáttakendur sem og okkur sem að stóðum.  Vegna þess hversu vel tókst og út frá innri leiðsögn hjá Patriciu um mikilvægi þessarar vinnu hér á Íslandi þá var ákveðið að halda annað námskeið á þessu ári og að fara af stað með hennar heilunarskóla-prógram hér á landi árið 2019. (sjá nánari upplýsingar um það hér.)  (Einnig má sjá upplýsingar um það hér að neðan á ensku)

Það er einnig ákveðið að Patricia ætlar að koma  með sjálfsheilunar/heilunarskóla-prógram sitt hingað til Íslands í jan 2019 sem samanstendur af 5 daga kennslulotum, þrisvar yfir árið í 3 ár.  Stórkostlegt prógram sem hún hefur starfrækt í Californiu og Frakklandi undanfarin ár.  Alveg ótrúlegt tækifæri að fá það hingað til lands. Nánari upplýsingar um það eru á vefsíðu Patriciu hér. Helgarnámskeiðið í lok júní er verðugt til að kynna sér um hvað þessi sjálfheilunar/heilunarskóli snýst.

Patricia White Buffalo kenndi við Barböru Brennan School of Healing í 13 ár og rekur núna 3 ára Shaman heilunarskóla bæði í Evrópu og USA (auk Íslands árið 2019!).  Einnig heldur hún námskeið um allan heim.  Hún hefur einstaklega mikla reynslu til að miðla af og er frábær kennari, eins og sjá má af á vefsíðu hennar hér:  http://beheavenonearth.com/about-patricia/

Hér fyrir neðan má líka sjá kynningu á ensku um hvað námskeiðið og tónheilunarkvöldið í júní snýst og fyrir neðan það stutta kynningu á prógraminu sem kemur 2019. 

Auk Patriciu koma 2 aðstoðarkennarar sem verða henni og ykkur til halds og trausts, þannig allir fá mjög mikla athygli og aðstoð á ferðalagi helgarinnar.  Ég mun líka vera aðstoðarkennari á námskeiðinu en ég er útskrifaður kennari frá Barböru Brennan School of Healing og er eins og stendur að kenna þar á fjórða ári í USA auk þess að starfa sem meðferðaraðili í Rósinni í Reykjavík.

Námskeiðið verður haldið í Kríunesi og er innifalinn hádegismatur báða daganaAuk þess er innifalið Shamanískt tónheilunar kvöld (Shamanic Sound Healing Event) sem verður fös kvöldið 29 júní kl 20 og er það hluti af námskeiðinu. (Sjáið athugasemd hér að neðan ef þið viljið skrá ykkur á þetta kvöld eingöngu)

Námskeiðið kostar 38.000 kr með öllu inniföldu.

Lengd námskeiðs er: Fös 29 júní frá 20.00-22.00, lau 30 júní frá 10-17.30 og sun 1 júlí frá 10-17.30.

Mér finnst þetta stórkostlega spennandi tækifæri og hvet þá sem hafa áhuga að skrá sig sem allra fyrst. 

Sendið mér tölvupóst á johanna@heilunjohannajonas.is ef þið viljið skrá ykkur.  Greiðsla fer fram við skráningu á vefsíðu Patriciu og mun ég senda ykkur upplýsingar um það við skráningu. (Það er sjálfsagt líka að skrá sig og biðja um frest á greiðslu ef það er betra fyrir viðkomandi)

Ég hef trú á því að þetta verði stórkostleg helgi í fallegu umhverfi með frábæru fólki :)!!  Ég hlakka svo til að deila henni með ykkur sem verðið þarna!

AHUGIÐ!  Það er líka hægt að skrá sig á föstudagskvöldið eingöngu, Shamaníska tónheilunar kvöldið sem verður haldið í Jógasetrinu, Skipholti 50c.  Það kostar eitt og sér 2000kr.  Látið mig vita með tölvupósti ef þið viljið skrá ykkur á það eingöngu.  Skráningargjald fyrir það greiðist einnig við skráningu.

Ljós og kærleikur

Jóhanna

Lýsing á námskeiðinu:  This Shamanic workshop is designed for those who are interested in experiencing personal transformation and healing through Shamanism. It is also designed for practitioners who want to learn to perform Shamanic techniques in their professional practice. You will learn: How to enter the Shamanic world through guided journeys, trance dance & Shamanic sound healing, Shamanic techniques such as performing & receiving a Soul Retrieval, which is the act of reclaiming lost parts of the soul that may have occurred due to traumas, accidents, illness, abuse, surgery or addiction. Patricia will also perform a group Soul Retrieval. This workshop is suited for professional studies and Personal growth.

Lýsing fyrir Tónheilunar kvöldið:

Patricia White Buffalo will invite you to discover the world of Shamanism, a marvelous Earth-Spirituality held and honored by our ancient indigenous ancestors. Patricia will help you ground, expand energetically and take you into a journey to discover the Shamanic Realm where everything is spirit: sky, earth, directions, elements, minerals, animals, each of them with their specific energy and medicine. No substance needed, of course, for this magic adventure, only Trance Dance bathed within the vibrations of chanting, drumming, fluting, rattling like the natives of the first nations used to practice. Welcome to the Journey!

STUTT KYNNING Á ENSKU Á PRÓGRAMINU SEM BYRJAR 2019

*If you sign-up for workshop in June we are offering $100 refund for tuition for the, Walking The Shaman’s Path ICELAND Program
~WALKING THE SHAMAN’S PATH ~ Reykjavik, Iceland, January 30 to February 3, 2019~
    You are INVITED TO APPLY
I am very excited to introduce our Shamanic Personal Transformational  & Training Program „WALKING THE SHAMAN’S PATH“!
A unique, extensive program that includes all the basic teachings of the shamanic practice, but more importantly,
A POWERFUL TRANSFORMATIONAL LIFE HEALING EXPERIENCE!
We are now accepting applications for our upcoming program in Reykijavik, Iceland. You are welcome
to sign-up for the first class January 30th to February 3rd to experience the program with no obligation
to continue the course.  
 
I am offering a free 50 minute session to those interested in the Program, to experience my work
and answer any questions or concerns you may have. Please email me at pwb@cruzio.com if you are interested in setting
up a session or would like an application.
 
GRADUATE TESTIMONY
„Patricia White Buffalo’s Walking the Shaman’s Path Program has been deeply transformative and healing on a personal level as well
as exceptionally good training for aspiring Shamanic practitioners.  As I walked the medicine wheel, I reclaimed aspects of my soul
and healed the wounds of lifetimes past and present. Amazing!  I cannot recommend this program emphatically enough.“
                                                                                              ~Juli Gumbiner, Program Graduate, Boulder Creek, CA~
mad PWB
This Program can also be taken solely for personal healing & self-transformation, while utilizing the Shamanic Training
in your existing profession. In training to be present for another you learn to be more present for yourself, humanity
and the planet.
Please join us on this transformational Journey!
 
With many blessing, Patricia White Buffalo

<3 <3 <3

Soul Retrieval pic 4

*
*

Hendur ljóssins heilunarnámskeið í apríl!

HENDUR LJÓSSINS HEILUNARNÁMSKEIÐ

fimmtudagskvöldið 27. apríl og helgina 29.-30. apríl.

dreamstime_l_50413582

Fimmtudaginn 27. apríl kl 19.30-22.00 flyt ég fyrirlesturinn „Hulinsheimar Orksusviðsins“ fyrir þáttakendur(Athugið að þeir sem taka ekki þátt í námskeiðinu geta líka skráð sig eingöngu á fyrirlesturinn.)  Upplýsingar á fyrirlestrinum eru mjög mikilvægar fyrir þáttakendur námskeiðsins svo mæting á hann er nauðsynleg.

Laugardagurinn 29. apríl:  kl 9-17 (til kl 18 fyrir þá sem vilja heyra meira um skólann Barböru Brennan School of Healing)
Sunnudagurinn 30. apríl:  kl 10-17.  

Námskeiðið samanstendur af eftirfarandi:

Farið verður í ýmsar orkuæfingar m.a. meðvitund um manns eigin „kjarnakraft,“ Tan tien jarðtengingu, öndun með litum, og æfingar sem virkja eigin hreyfiskynjun á orku til heilunar.  Allar þessar æfingar auka meðvitund um manns eigið orkukerfi og ástand þess.  Einnig verður farið í æfingar til að auka við eigin „háskynjun“ sem getur komið manni mjög til góða í lífsins vegferð.

Fluttir verða tveir stuttir fyrirlestrar um helgina, annarsvegar um grunnheilunaraðferðina „Chelation“ (orkujöfnun) og hinsvegar um „háskynjun.“  Kenndar verða verklegar leiðbeiningar fyrir þessa grunnheilun ásamt virkjun eigin orkustöðva til heilunar.  Síðan vinna tveir og tveir saman undir leiðsögn við að framkvæma (og þiggja) heilanir báða dagana.

Auk þessa verður leidd hugleiðsla og farið yfir tækni til sjálfsheilunar.                                                                     

Heilun

Námskeiðið kostar 25.000 kr fyrir báða dagana auk fyrirlestursins á fimmtudeginum.  Þeir sem geta komið með eigin nuddbekk á námskeiðið fá 10% afslátt.  Fyrirlesturinn fim. 27. apríl eingöngu kostar 2.500kr.

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt endilega láttu mig vita með tölvupósti sem allra fyrst þar sem pláss eru takmörkuð.   Netfangið er: johanna@heilunjohannajonas.is. Ég mun þá senda um hæl skráningareyðublöð sem skólinn fer fram á að séu útfyllt af þeim sem vilja taka þátt í Hendur ljóssins námskeiði.  Þar er beðið m.a. um upplýsingar um heilsu og ástand viðkomandi; þokkalega gott andlegt og líkamlegt jafnvægi er nauðsynlegt fyrir orku & heilunarvinnu af því tagi sem kynnt er á námskeiðinu.  (Vil taka fram að þetta námskeið er eftir ákveðnum stöðlum Barböru Brennan School of Healing og hef ég öðlast réttindi frá skólanum eftir mitt 6 ára nám þar til að kenna það. Auk þess er ég þetta árið þar í kennaraþjálfun.)

Námskeiðsgjaldið 25.000 kr greiðist við skráningu.

Ef þig langar að láta einhvern nákominn þér sem kynni að hafa áhuga á svona námskeiði vita af því, þá endilega áframsendu þessar vefsíðu upplýsingar á viðkomandi :).

Hér fyrir neðan er að finna nokkrar umsagnir um þetta sama námskeið sem ég var með í fyrra:

„Hjartans þakkir fyrir kyngimagnað Barbara Brennan – námskeið sem Jóhanna Jónas leiðir af djúpri þekkingu, kærleika og visku og einstöku næmi og virðingu fyrir anda og efni. Þetta er praktískt námskeið sem leiðir þó inn á mystískar lendur. Það var einstaklega gott að vinna svona mikið með sterka jarðtenginu og hið mikla traust sem henni fylgir sem gerði þetta eðalnámskeið alveg kristaltært.“ Harpa Arnardóttir

„Frábært námskeið sem dýpkaði skynjun mína á heilun.  Jóhanna er frábær kennari. Takk fyrir mig.“ Edda Ólína Sigríður Jónsdóttir

„Skemmtilegt, vel undirbúið, áhugavert efni, notaleg aðstaða, ógleymanleg helgi.“ Arndís Ásta Gestsdóttir

Það gleður mig líka að láta vita af því að Barbara Brennan School of Healing mun opna útibú af skólanum í Oxford, Englandi í september næstkomandi, þar sem hægt er að taka þetta 4 ára heilunarnám auk 2 ára framhaldsnáms :)!

Hlakka til að heyra frá ykkur sem hafið áhuga,

með kærleika og ljósi til allra <3.

Jóhanna Jónas,        UM MIG Jóhanna Jónas

Brennan heilari og meðferðaraðili í Heildrænni samtalsmeðferð

lotus-healing-arts

Alþjóðlegur Brennan heilunardagur

BRENNAN HEILUN Á ÍSLANDI

HOL_IHD_Logo_RGB_Web_664px

         SUNNUDAGURINN 15 FEBRÚAR,

    ER ALÞJÓÐLEGUR BRENNAN HEILUNARDAGUR.

 OPIÐ HÚS FRÁ 13-16 Í RÓSINNI, BOLHOLTI 4, 4. HÆÐ

 FYRIRLESTUR UM BRENNAN HEILUN KL 13:30.

Aðgangur ókeypis. Veitingar í boði.

    

HVAÐ ER BRENNAN HEILUN?

     NÁM BRENNAN HEILARA (í Barbara Brennan School of Healing)

     HVAÐ ER “ORKUSVIД OG “ORKUVITUND”?

     ER HÆGT AÐ STÝRA EIGIN ORKU?

     HVAÐ GERIST Í HEILUNARTÍMA?

         FYRIRLESARAR ERU BRENNAN HEILARAR Á ÍSLANDI.

brennan mynd

HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ YKKUR :)!