HEILDRÆN SAMTALSMEÐFERÐ
Ásamt Brennan heilun þá býð ég einnig upp á tíma í Heildrænni samtalsmeðferð, en úr því fagi útskrifaðist ég vorið 2015 eftir 2 ára framhaldsnám í Barböru Brennan School of healing (sem Brennan Integrative Practitioner).
Í Heildrænni samtalsmeðferð er leitast við að samþætta hið huglæga, tilfinningalega, andlega og líkamlega, og skoðað hverjar grunnorsakir vandamála í lífi einstaklings kunna að vera. Lífið er skoðað í samhengi og unnið í að losa fyrirstöður (blokkeringar) sem gætu legið í tilfinningum, huga og líkama út frá áföllum og/eða mótun í uppeldi og öðrum erfiðleikum í lífinu.
Mikið er hugað að líkamsvitund í meðferðinni og hvar tilfinningaþungi/hleðsla kann að mynda fyrirstöðurnar sem og hvernig hugur, tilfinningar og líkami spila saman ásamt hinum andlega (spiritual) þætti ef það á við.
Ég styð skjólstæðinga í að kynnast sjálfum sér betur og að auka meðvitund um atferli þeirra í lífinu, t.d. hvað hindrar hann/hana í að ná árangri, hvaða ósjálfráðu tilfinningaviðbrögð kunna að valda örðugleikum í samskiptum og hvað kunni að liggja að baki vanlíðan, streitu, depurð, þunglyndi, orkuleysi, síþreytu og erfiðum tímum í lífinu, sem við mætum öll á lífsins leið.
Í hverjum tíma vinn ég mikið með hvað er til staðar hér og nú. Nám mitt og reynsla gerir mér kleift að fylgjast grannt með orkuflæði skjólstæðingsins og greina hvar og hvernig fyrirstöður kunni að liggja. Ég reyni að benda á góð ráð sem gætu hjálpað viðkomandi í leit að betri líðan ef við á og vinn út frá djúpri samkennd og kærleika.
Margir koma til mín sem eru að glíma við erfið tímabil í lífinu, og/eða vilja vinna úr sorg eða áföllum, eiga í samskiptaörðugleikum, eru að leita að tilgangi í lífinu, finna fyrir óskilgreindri vanlíðan, orkuleysi, þunglyndi og almennri vanlíðan o.s.frv. Einnig fæ ég mikið af fólki til mín sem vill læra að þekkja sig betur, sjá líf sitt í betra samhengi og vill ná betri/meiri árangri í sjálfsvinnu sinni.
Ýmist er hægt að velja Heildræna samtalsmeðferð eingöngu eða sambland af tímum með Heildrænni samtalsmeðferð og Brennan heilun. Í samblönduðum tíma þá er byrjað á samtalsmeðferðinni og seinni hluti tímans er varið á bekknum í heilun.