Í ein 23 ár hef ég starfað sem leikkona og síðar líka sem magadanskennari og veitingastjóri á Grænum Kosti. Allan þann tíma hef ég haft óbilandi áhuga á sjálfsvinnu, sjálfsþroska, og sjálfsheilun. Þessi áhugi á mannrækt leiddi mig á endanum í Barbara Brennan School of Healing. Þaðan útskrifaðist ég eftir 4 ára nám í maí 2013.
Kynni mín af þessum skóla hafa umbreytt lífi mínu. Þau hafa sýnt mér fram á hvers megnug þessi vinna getur verið, bæði hvað varðar mig sjálfa og aðra. Mig langar til að koma þessari þekkingu á framfæri svo fleiri geti notið ávaxtanna sem ég hef uppskorið.
Nánar um mig í stóru og smáu:
Ég er fædd 3 ágúst 1964 og uppalin í Hafnarfirðinum. Er dóttir Jónasar Bjarnasonar kvensjúkdómalæknis og Jóhönnu Tryggvadóttur jógakennara og viðskiptafrumkvöðuls. Ég gekk í víðistaðaskóla og útskrifaðist seinna með stúdentspróf úr Verslunarskóla Íslands.
Leiðin lá til Bandaríkjanna þar sem ég útskrifaðist með BA í leiklist úr Boston University vorið ´90. Eftir útskrift vann ég síðan í ein 2 ár við leiklist í New York og Los Angeles. Kom heim til Íslands vorið ´92 og starfaði næstu árin m.a. í Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, hinum ýmsu sjálfstætt starfandi leikhúsum, við sjónvarp, útvarp, kvikmyndir og talsetningar.
Á árunum ´98-2000 upplifði ég mikla erfiðleika í mínu lífi. Var komin á þrot í mínu starfi, var yfirkeyrð og stóð í erfiðum skilnaði, upplifði sjálfa mig með síþreytu, glímdi við átröskun, ýmsa líkamlega vanlíðan og mikla depurð. Vissi varla til hvaða ráða ég átti að taka til að rétta líf mitt við. Á þessum tíma var ég líka að byrja að stunda hugleiðslu sem var að mörgu leyti minn bjargvættur.
Ég ákvað að taka ábyrgð á mínu lífi, leita mér hjálpar og skoða hvað mætti betur fara hið innra og ytra. Upphófst nú mikil sjálfsvinna og smám saman fór að horfa til betri vegar. Á næstu árum þakkaði ég mínu sæla fyrir þessa erfiðleika því þeir höfðu leitt til mikils þroska og kom sá tími þar sem mér fannst mér aldrei hafa liðið betur á ævinni. Sjálfsvinnan hélt þó auðvitað áfram og mun líklega endast lífið!
Svo varð árið 2008 að ég komst í kynni við Barbara Brennan School of Healing fyrir tilstilli góðra vina. Ákvað að fara á vit ævintýranna í langvinnu 4 ára námi í þessum krefjandi skóla haustið 2009. Í stuttu máli sagt að þá er þetta að mínu mati stórkostlegur skóli sem ég þakka mínu sæla að hafa komist í kynni við. Mér lánaðist líka á þessum árum að starfa sem Veitingastjóri á Grænum Kosti sem var einnig frábær skóli og einstaklega ánægjuleg reynsla í sjálfu sér.
Ég útskrifaðist úr Barbara Brennan School of Healing vorið 2013 sem Brennan Healing Science Practicioner (Brennan Heilari), og langar mig núna mikið að verða öðrum til hjálpar út frá allri minni fenginni reynslu og þekkingu.
Í djúpu þakklæti fyrir allt sem ég hef reynt, lifað og lært.
Mynd af mér á forsíðu tekin af Vigdísi Viggósdóttur, ljósmyndara.